Apotek.is
GLÆ-NÝTT Í DEKUR-APÓTEKINU
Endurnærir húðina og heldur henni ungri
PURITY HERBS íslenskar gæðavörur fást í Laugarnesapóteki
PURITY HERB
Fætur og hendur
Á iljunum er að finna alla helstu taugaenda líkamans og því mikilvægt að nostra við þennan mikilvægan líkamspart. Hendurnar eru sá líkamshluti sem verður fyrir einna mestu áreiti yfir daginn, eins og stöðugum handþvotti og snertingu við hin ýmsu efni og hluti.
Fótakrem:
Hágæða krem sem örvar blóðflæði, dregur úr þreytuverkjum og veitir vellíðan. Inniheldur jurtir og kornkjarnaolíur sem draga úr óæskilegri lykt með því að hindra sveppa-og bakteríuvöxt. Við reglulega notkun haldast fæturnir mjúkir og heilbrigðir. Þreyta og pirringur heyra sögunni til. Með aldrinum vill blóðflæði til fótanna oft minnka og er því kremið sérstaklega gott fyrir eldra fólk og alla þá sem eru fótkaldir. Inniheldur m.a: eldpipar, rósmarín, tea-tree og blóðberg.
Frískir fætur:
Fótamjólk sem endurlífgar og hressir þreytta fætur. Hefur kælandi og frískandi áhrif auk þess sem hún dregur úr lykt og bakteríum. Inniheldur salvíu og tea-tree auk piparmyntu og furu sem kæla og endurnæra þreytta fætur.
Fótabaðsalt:
Frábært í fótabaðið, stuðlar að heilbrigðum og hraustum fótum. Jurtirnar í saltinu örva blóðflæði, draga úr lykt og bæta áferð húðarinnar. Notið c.a. 2-3msk í fótabaðið. Inniheldur m.a: rauðsmára, vallhumal, tea-tree og rósmarín.
Handáburður:
Ótrúlega nærandi og græðandi, gengur fljótt inní húðina. Kremið smitar ekki og hentar því einkar vel öllum sem vinna með pappír eða handavinnu. Hefur mildan og ferskan jurtailm. Inniheldur m.a: sítrónubörk, tágamuru, ljósatvítönn og Lofnarblóm.
Naglaolía:
Neglurnar okkar eru undir miklu álagi daglega vegna sterkra efna sem þurrka og skemma náttúrulega virkni þeirra. Olían er sérstaklega hönnuð til að styrkja og næra neglurnar og mýkja naglaböndin. Hún inniheldur steinefnaríkar og styrkjandi jurtir ásamt olíum og ólífusqualan. Inniheldur ma. elfting, fjallagrös, hlaðkollu og vallhumall. Berist á neglur og naglabönd eftir þörfum og nuddið vel inn.
Xerodent, fæst í Laugarnesapóteki
Ábendingar:
Xerodent er notað við meðhöndlun einkenna vegna munnþurrks og fyrirbyggjandi við tannskemmdum hjá sjúklingum með munnþurrk.
Xerodent inniheldur eplasýru. Súra bragðið örvar munnvatnsviðbragðið og eykur þannig munnvatnsframleiðsluna. Töflurnar innihalda natríumflúoríð sem styrkir glerunginn gegn tannátu (tannskemmdum). Töflurnar innihalda sætuefnið xylitól, sem einnig verndar tennurnar gegn tannskemmdum. Xerodent munnsogstöflur innihalda ekki sykur og hafa gott appelsínubragð.
Munnþurrkur eykur hættu á tannskemmdum, eykur líkur á sveppasýkingu í munni og minnka festu gervitanna.
Ástæður munnþurrks eru sjúkdómar, eða notkun lyfja svo sem geðlyf, róandi lyf, svefnlyf, blóðþrýsingslyf,bjúglyf og ofnæmislyf.

